Umfjöllun um Mývetning - Gleipnir og nokkra leikja!
Seinasti leikurinn sem að ég skrifaði um var á móti en hann unnum við einmitt 7-0 og var það góður leikur.
Nú ég er ekki búinn að skrifa um fleiri leiki í sumar, svo ég ætlaði að hafa þetta smá ofurblogg og rifja upp þessa leiki sem við höfum spilað hingað til.
Reynir - Mývetningur
Í leiknum á eftir Þrumunni lentum við á móti Reyni en það var fyrsta almennilega prófraunin okkar og var þetta lið leiðinlegt að leika á móti og varðist það vel og á sem flestum mönnum og við sóttum og sóttum og reyndum flest allt nemað skora, og það endaði þannig að þeir náðu einu marki fyrir leikslok og unnu þeir þennan leik 1-0 sem var grátlegt, en þetta er í þriðja skiptið í röð sem að við töpum fyrir þessu liði.
Smárinn - Mývetningur
Þessi leikur var allt annar heldur en leikurinn á undan, og var hann frekar auðveldur en við unnum hann 8-0 og var þetta fyrsti leikurinn sem að ég spilaði á leiktíðinni og náði þar að halda hreinu með hjálp frá frábæru vörninni og öllu liðinu, þetta var auðveldur leikur og allt gekk upp, og stóðum uppi sem sigurvegarar með 4 mörkum frá Ása, 2 frá Hrólfi og svo 1 frá Jóni og Þórhalli. Frábær leikur og góður og verðskuldaður sigur.
Mývetningur - FC vinir010
Annar leikurinn minn og aftur hélt liðið hreinu, og mörkin létu ekki á sér standa, leikurinn byrjaði vel man ég og Fc vinir virtust í fínu form til að byrja með en svo þegar fyrsta markið okkar kom, komu nokkur í kjölfarið og reyndist þetta vera stærsti sigurinn hjá okkur í deildinni held ég bara hingað til en leikurinn endaði 10-0 fyrir okkur og Hrólfur fór á kostum í þessum leik og skoraði 4 mörk algjör toppstriker, á eftir honum komu Hjalti og Ási og Daníel allir með 2 mörk hver, topplið með flottum leikmönnum hér á ferð, og það má ekki bara hrósa sókninni, vörnin stóð sig frábærlega og hélt hreinu í fjórðaskiptið á leiktíðinni. Glæsilegur leikur á móti veikara liði og sýndum krafta okkar vel.
Leppaður Arfi - Mývetningur.
Þá kom annað sterkt lið sem að við lentum á móti, og þetta var almennileg prófraun. Þriðji leikurinn minn en við byrjuðum á því að lenda undir en náðum svo minnir mig að jafna með flottu marki frá Jóni og svo komumst við yfir með stórbrotnu langskoti frá Pétri langt utan að velli og endaði það í netinu. Svo leið á leikinn og við börðumst fyrir þessu en þeir sóttu vel og uppskáru mark og í því meiddist ég einmitt á hnénu í annað skiptið í sumar og var að hætta og fór þá Pétur í mark og stóð sig stórglæsilega og varði vel og var brjálaður eins og hann gerir best!
Leikurinn endaði 2-2 og ekki annað hægt að segja að þetta hafi verið sanngjörn úrslit. Góður leikur og vel barist hjá okkar liði.
Mývetningur - Smjörvi
7. Umferð í utandeildinni og hörku stefning í mönnum, og í þessari umferð vorum við að spila við Smjörva, hörku lið sem að barðist og barðist, og vorum við lúmskt heppnir við að vinna þennan leik, en við unnum 3-2 með 2 mörkum frá Hrólfi og 1 glæsimark og vel þegið frá Þóri.
Hörkuleikur sem að við þurftum að hafa fyrir að vinna.
Mývetningur - Timburmenn.
Þá er það 8. leikurinn okkar og var hann á móti Timburmönnum og það var vitað fyrir að þetta yrði hörkuleikur og barist fyrir öllum boltum sem að reyndist vera satt. Við komumst yfir eftir um 10 min með marki frá Ása, en lengra komumst við ekki, en leikurinn endaði 3-1 og verður að segjast að við höfum verið skítslakir, en áttum góða spretti inná milli.
Leikurinn endaði 3-2 samkvæmt kdn.is og ekki er vitað með hver skoraði seinasta markið okkar, þakka honum fyrir það.
Mývetningur - Gleipnir.
Þá er nú loksinns komið að umfjöllununni um seinasta leikinn okkar en hann var á móti Gleipni og eru með fínann mannskap og eru um miðja deild. Nokkra lykilmenn vantaði í liðið svo sem Pétur, Daníel og þór, en uppá móti kom Bjarni og spilaði sinn fyrsta leik og spilaði vel og af hörku, einmitt það sem að vantaði. Þetta var hööörku leikur þar sem að við máttum sko berjast fyrir stigunum en við lentum undir í byrjun leiks, en jöfnuðum þó fljótt og stoppuðum ekki þar. Þetta var svokallaður markaleikur og var mikið barist í þessum leik og við höfðum sigurinn af. Kæruleysi kom samt í liðið undir lokin og við fengum á okkur klaufamörk sem að við áttum ekki að fá og menn voru farninr að færa sig full framarlega á vellinum þegar sigur var í höfn, sendingar voru að klikka og menn virkuðu eitthvað óstyrkir og kærulausir, sem má ekki gerast aftur, því á móti sterkari liðum hefði okkur verið refsað fyrir þetta!
En góður leikur engu að síður sem endaði 7-4 með 2 mörkum frá Ása, svo skoruðu Heiddi, Hjalti, Jón, kristinn og Bjarni allir 1 mark og við höfðum þetta vel af og komumst aftur upp fyrir Timburmenn.
Eins og staðan er núna erum við komnir uppí 4. sæti með 19 stig, en fyrir ofan okkur eru Leppaður Arfi með 20 stig, Hamranir með 21 og Reynir í fyrsta sæti með 25 stig. Svo núna er það eina í stöðunni fyrir okkur að sýna hvað þetta lið getur, berjast eins og við getum í þessum 2 leikjum sem eftir eru og enda leiktíðina eins ofarlega og við getum og komast í topp 3, því við getum það svo vel efað við sýnum smá metnað og eldmóð og setjum allt í þetta eins og við eigum að gera! Við enduðum í öðru seinasta tímabil og er það okkar besti árangur hingað til og sýnum nú þennan kraft sem að við höfum verið að spara og tökum okkur saman og vinnum Hamrana og Vini vors og Sússa og endum þetta eins vel og við getum!
Takk fyrir mig, þetta var ofurbloggið mitt og með smá hvatningar ræðu í lokin, og ég legg til að menn kommenti á þetta og sýni smá áhuga og skoðanir sínar!
KOMA SVO MÝVETNINGUR!
Júlíus Manager.